Grunnþjónusta á RHnet
Aðilum tengdum RHnet býðst eftirfarandi grunnþjónusta:
-
Nafnaþjónusta. Skilgreina má nafnþjóna RHnet sem
aukaþjóna ("slave", "secondary") þjóna
fyrir lén tengdra aðila. Sendið beiðni um slíkt til 'hostmaster@rhnet.is'
-
MX varaleið. Leyfilegt er að skilgreina póstþjón RHnet sem viðkomugeymslu
("MX fallback") fyrir tölvupóst RHnet aðila. Vinsamlega látið
'postmaster@rhnet.is' vita ef þið hyggist nýta ykkur þetta.
-
Klukkuþjónustua. Notið 'time0.rhnet.is' sem NTP klukkuþjón.
Ofangreint er innifalið í grunngjöldum til RHnet. Önnur þjónusta sem RHnet kann
að setja upp verður væntanlega gjaldfærð sérstaklega.